Sir Jim Ratcliffe, eigandi Manchester United, er mættur á Formúlu 1 keppnina í Kína sem fer fram núna um helgina.
Fréttamaður Sky Sports náði af honum tali þar og spurði hann út stjóramál Man Utd.
Fréttamaður Sky Sports náði af honum tali þar og spurði hann út stjóramál Man Utd.
Michael Carrick stýrir nú United til bráðabirgða eftir að Rúben Amorim var rekinn. Ratcliffe er ánægður með það starf Carrick er að vinna.
Þegar hann var hins vegar spurður út í það hvort Carrick yrði stjóri United til frambúðar, þá sagði hann einfaldlega:
„Ég ætla ekki að fara þangað."
Það er mikið rætt og ritað um það þessa dagana hver verði næsti stjóri Man Utd, hvort það verði Carrick eða einhver annar. The Sun setti fram fimm manna lista í dag en á honum voru Oliver Glasner, Andoni Iraola, Unai Emery, Roberto De Zerbi og Julian Nagelsmann.
Athugasemdir


