Liverpool er ríkjandi Englandsmeistari, liðið fór í úrslit enska deildabikarsins en tapaði gegn Newcastle. Þá féll liðið úr leik í 16-liða úrslitum eftir tap gegn PSG í spennandi viðureign.
Liðið hefur verið í miklu brasi á þessu tímabili og situr í 6. sæti úrvalsdeildarinnar en er enn með í Meistaradeildinni og enska bikarnum.
Liðið hefur verið í miklu brasi á þessu tímabili og situr í 6. sæti úrvalsdeildarinnar en er enn með í Meistaradeildinni og enska bikarnum.
Arne Slot er bjartsýnn fyrir lokasprettinn á tímabilinu. Liðið mætir Tottenham á Anfield í dag en Tottenham er í harðri fallbaráttu.
„Við vitum hversu erfitt það er að ná þessum árangri sem við náðum á síðasta tímabili. Við spiluðum í úrslitum deildabikarsins, við vorum mjög nálægt því að vinna PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það er óhætt að segja að við höfum verið í mun meira brasi á þessu tímabili," sagði Slot.
„Við getum unnið eitthvað, erum í átta liða úrslitum enska bikarsins og 16-liða úrslitum í Evrópu. Við erum með hóp sem hefur sýnt á þessu tímabili að við höfum bætt okkur. Þeir munu bæta sig enn meira á næstu árum. Framtíðin er björt hjá Liverpool."
Athugasemdir




