Pedro Neto, kantmaður Chelsea, fær eins leiks aukabann og 70 þúsund punda sekt frá enska fótboltasambandinu vegna framkomu sinnar eftir að hafa verið rekinn af velli í leik gegn Arsenal fyrir tveimur vikum.
Neto fékk tvö gul spjöld og þar með rautt í leiknum sem Arsenal vann 2-1.
Eftir brottvísunina yfirgaf hann þó ekki völlinn strax heldur mótmælti dómurunum. Portúgalinn hélt því fyrst fram að hann vissi ekki af fyrra spjaldinu.
Enska fótboltasambandið telur hann hafa sýnt óviðeigandi hegðun og notað móðgandi orð í garð dómara. Neto viðurkenndi brotið og fékk því aukaleik í banni og sekt.
Neto hefur átt slæma daga undanfarið en hann var gagnrýndur fyrr í vikunni fyrir að hrinda boltastrák í viðureign Chelsea og PSG í Meistaradeildinni
Athugasemdir



