Júlíus Mar í byrjunarliði Kristiansund
Af íslensku leikmönnunum fjórum hjá Brann er bara Jón Dagur Þorsteinsson leikfær í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Hann er í byrjunarliðinu í útileik gegn Kristiansund sem hefst 13:30.
Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon hafa verið á meiðslalistanum í talsverðan tíma og eru ekki klárir. Þá er Kristall Máni Ingason einnig að glíma við meiðsli.
Júlíus Mar Júlíusson, sem kom frá KR, er í vörn Kristiansund en Hrannar Snær Magnússon, sem kom frá Aftureldingu, á bekknum.

Freyr Alexandersson og lærisveinar í Brann hafa verið að glíma við markaþurrð og aðeins skorað fjögur mörk í síðustu þrettán leikjum.
Liðið komst í umspil Evrópudeildarinnar en féll þar úr leik gegn Bologna.
Norska úrvalsdeildin fór af stað í gær; Molde vann 2-0 sigur gegn Rosenborg og HamKam vann meistarana í Viking 2-1.
Viðar Ari Jónsson kom inn af bekknum hjá Ham/Kam. Hilmir Rafn Mikaelsson byrjaði hjá Viking en var tekinn af velli á 70. mínútu.
Athugasemdir