Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Ólsarar unnu toppslaginn
Asmer Begic gerði fyrsta mark Ólsara
Asmer Begic gerði fyrsta mark Ólsara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ó. 3 - 0 Selfoss
1-0 Asmer Begic ('30 )
2-0 Kolbeinn Tumi Sveinsson ('34 )
3-0 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('71 )

Víkingur Ólafsvík er komið með annan fótinn í undanúrslit B-deildar Lengjubikarsins eftir að hafa unnið Selfoss, 3-0, í toppslag B-riðils í Akraneshöllinni í dag.

Selfoss hafði unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum á meðan Ólsarar höfðu unnið þrjá og tapað einum.

Ólsarar vissu það fyrir leikinn að þeir þyrftu að vinna Selfoss með að minnsta kosti tveggja marka mun til þess að komast upp fyrir Selfyssinga og gerði liðið gott betur en það.

Asmer Begic skoraði eftir hálftímaleik og bætti Kolbeinn Tumi Sveinsson við öðru aðeins fjórum mínútum síðar.

Abdelhadi El Bouzarrari gulltryggði sigur Ólsara tuttugu mínútum fyrir leikslok og Ólsarar með annan fótinn í undanúrslit.

Eina sem þeir þurfa að vona er að Reynir Sandgerði slátri ekki KFG með ellefu mörkum eða meira. Allt getur nú gerst á þessu blessaða undirbúningstímabili, en ellefu marka sigur er heldur ólíkleg niðurstaða.
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar karla
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner