Unai Emery þjálfari Aston Villa svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær fyrir leik liðsins gegn Manchester United á sunnudaginn.
Hann ræddi meðal annars um slakt gengi ensku liðanna í fyrri leikjum sínum í 16-liða úrslitum í evrópukeppnum. Í Meistaradeildinni töpuðu Manchester City, Chelsea og Tottenham öll með þriggja marka mun á útivöllum á meðan Liverpool tapaði með einu marki í Tyrklandi og Newcastle United og Arsenal gerðu jafntefli.
Þá tapaði Nottingham Forest óvænt á heimavelli gegn Elíasi Rafni Ólafssyni í Evrópudeildinni og gerði Crystal Palace markalaust jafntefli við AEK Larnaca í Sambandsdeildinni.
Aston Villa er eina enska liðið sem vann í Evrópu í miðri viku en í heildina eru níu ensk félög sem taka þátt í evrópukeppnum - sex í Meistaradeildinni, tvö í Evrópudeildinni og eitt í Sambandsdeildinni.
„Þetta var algjört 'VÓ!' að sjá hvað ensku liðin lentu í miklum erfiðleikum í evrópukeppnum síðustu daga. Við getum kannski sagt að enska úrvalsdeildin er besta deild í heimi en það er samt erfitt að keppa í hinum ýmsu evrópukeppnum. Það er erfitt að berjast við lið frá Evrópu, það er mikið af sterkum liðum," sagði Emery.
Aston Villa rétt marði Lille á útivelli í Evrópudeildinni. Leikurinn var nokkuð jafn og var Hákon Arnar Haraldsson á sínum stað í byrjunarliði Lille.
Athugasemdir



