Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 23:18
Brynjar Ingi Erluson
Keane alfarið á móti því að Carrick verði ráðinn til frambúðar - „Ég er ekki einn af þeim“
Michael Carrick
Michael Carrick
Mynd: EPA
Roy Keane er með sterkar skoðanir á stjóramálum Man Utd
Roy Keane er með sterkar skoðanir á stjóramálum Man Utd
Mynd: EPA
Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United, segist ekki vilja halda Michael Carrick áfram sem stjóra félagsins á næstu leiktíð en þetta sagði hann á Sky Sports.

Man Utd er komið í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir ömurlegt síðasta tímabil.

Carrick hefur komið United aftur í röð fremstu liða í deildinni, en Keane er ekki sannfærður.

Hann segir þetta hafa verið góða ráðningu og tímasetningin frábær, en að Carrick sé ekki rétti maðurinn til að leiða liðið áfram á næsta tímabili.

„Nei. Ég er á þeirri skoðun að það séu betri kostir þarna úti og svo hefur ekki verið nein hætta í þeim leikjum sem hann hefur stýrt liðinu. Hann hefur haft þrjár vikur til þess að undirbúa leiki.“

„Ef einhver hefði minnst á Carrick fyrir þremur mánuðum þá hefði sá og hinn sami verið læstur inni. Þetta var í raun bara góður tími fyrir hann að koma og hann hefur unnið gott starf.“

„En ég er á því að það séu mun betri kostir þarna úti sem geta tekið við Man Utd. Það er bara þannig. Man Utd þarf að fara og taka menn í atvinnuviðtöl og skoða stöðuna,“
sagði Keane.

Hann segir marga kosti fylgja því að taka við sem bráðabirgðastjóri. Pressan sé ekki eins mikil. Það sem Keane vill er að United fari að vinna titla á ný og Carrick er ekki rétti maðurinn til þess að gera það.

„Flestir leikmenn elska bráðabirgðastjóra. Það eru engar truflanir, en þegar þú ert ráðinn til frambúðar þá ertu kominn með margar ólíkar skyldur.“

„Ég tel að Man Utd þurfi einhvern sem hefur meiri reynslu af því að vinna titla og berjast í Evrópu, en hann er ekki með það. Allt þetta tal um að allir séu rosalega hrifnir af honum er ég ekki viss um því ég er ekki á því að allir hafi elskað hann í síðustu viku þegar þeir gátu ekki unnið tíu leikmenn Newcastle.“

„Tímasetningin var góð fyrir Man Utd. Þið verðið að muna að þetta er sama lið og hafnaði í 15. sæti. Fólk veðrast upp að sjá United í þriðja sæti deildarinnar, en ég er ekki þar. Ég er ekki einn af þeim.“

„Það sem gerir mig spenntan er að vinna titla,“
sagði Keane á Sky.
Athugasemdir
banner
banner