Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Gyökeres um Dowman: Lítur ekki út fyrir að vera sextán ára
Max Dowman er nýjasta stjarna Arsenal
Max Dowman er nýjasta stjarna Arsenal
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres fór fögrum orðum um hinn sextán ára gamla Max Dowman eftir frammistöðu þess síðarnefnda í 2-0 sigrinum á Everton í gær.

Dowman breytti leiknum fyrir Arsenal en allt stefndi í markalaust jafntefli áður en Mikel Arteta setti Dowman inn á.

Fyrirgjöf hans bjó til fyrra markið sem Viktor Gyökeres skoraði og þá gerði Dowman seinna markið eftir ótrúlegt einstaklingsframtak.

Gyökeres gat ekki annað en glaðst með Dowman eftir leikinn.

„Hann lítur ekki út fyrir að vera 16 ára gamall þegar hann er að spila, en hann er ótrúlegur og frábært að sjá hann skora svona mark. Þú gast séð alla leikmennina fagna með honum.“

„Hann er frábær og ég er svo ánægður fyrir hans hönd. Við reynum alltaf að finna leið til að vinna og okkur tókst það í dag.

„Max tekur svo margar réttar ákvarðanir þegar hann stígur fæti inn á völlinn. Hann er bara ótrúlegur og svakalega góður leikmaður,“
sagði Gyökeres um liðsfélaga sinn.

Markið hjá Dowman gerði hann að yngsta markaskorara í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en hann tók metið af samlanda sínum, James Vaughan sem skoraði fyrir Everton gegn Crystal Palace árið 2005, þá aðeins 16 ára og 271 dags gamall, en Dowman var aðeins 16 ára og 73 daga gamall þegar hann skoraði í gær.
Athugasemdir
banner
banner