Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 14:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alonso ekki í viðræðum við Liverpool - Með tilboð á borðinu
Mynd: EPA
Xabi Alonso var rekinn sem stjóri Real Madrid í janúar eftir vonbrigðatímabil. Hann tók við liðinu í sumar eftir frábæran tíma hjá Leverkusen.

Alvaro Arbeloa tók við af honum tímabundið en liðið er stigi á eftir Barcelona í titilbaráttunni á Spáni og er í górði stöðu gegn Man City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 3-0 sigur á Bernabeu á dögunum.

Alonso hefur verið orðaður við Liverpool en Inaki Ibanez, umboðsmaður Alonso, segir að ekkert sé til í þeim orðrómi.

„Alonso er að íhuga öll tilboðin sem hann hefur fengið til að ákveða næsta áfangastað fyrir næsta tímabil. Allt þetta tal um samning við Liverpool er ekkert annað en vangaveltur fjölmiðla," sagði Ibanez.
Athugasemdir
banner