Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dyche með kröfur
Sean Dyche.
Sean Dyche.
Mynd: EPA
Sean Dyche er einn af þeim sem hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá Tottenham.

Igor Tudor verður áfram bráðabirgðastjóri í næsta leik en liðið hefur tapað öllum fjórum leikjunum undir hans stjórn. Næsti leikur er gegn Liverpool um helgina og Tottenham gæti farið niður í fallsæti.

En Tottenham er byrjað að skoða möguleika og Dyche gæti verið þar á meðal. TalkSPORT segir hins vegar að Dyche sé með kröfur þegar kemur að starfinu.

Hann vill ekki fá stuttan samning, hann vill fá samning sem gildir lengur en núverandi tímabil.

Dyche var síðast stjóri Nottingham Forest en var rekinn þaðan fyrir um mánuði síðan.
Athugasemdir
banner
banner