Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Baulað á Liverpool og Slot - „Held að þessu hafi verið beint að liðinu sem er fullkomlega skiljanlegt“
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, sagðist ótrúlega svekktur með að liðið hafi enn einu sinni fengið á sig mark undir lokin en í þetta sinn tapaði liðið stigum í 1-1 jafntefli gegn Tottenham á Anfield.

Liverpool hefur verið að fá á sig mörk undir lok leikja og var sama upp á teningnum í kvöld þegar Richarlison setti boltann í vinstra hornið undir lok venjulegs leiktíma.

„Ég er svekktur og pirraður. Það er alltaf svakalegt svekkelsi þegar þetta gerist á síðustu mínútunum.“

„Hversu oft þarf þetta að gerast? Það gerðist aftur í dag. Í þetta sinn kom þetta okkur ekki beint í opna skjöldu. Síðustu 15-20 mínúturnar var kannski jafnasti tími leiksins.“

„Ég er orðinn vanur þessu. Við skoruðum ekki úr færunum okkar og fáum síðan á okkur mark á síðustu mínútunni. Þetta var ekki í fyrsta sinn í leiknum sem þeir ógna okkur, þeir gerðu það líka tvisvar rétt fyrir lok fyrri hálfleiks,“
sagði Slot.

„Ég er með 12-13 leikmenn sem geta skilað góðri frammistöðu. Rio er að gera það vel og því fullkomlega eðlilegt að spila honum. Þetta snýst svolítið um að spila þeim sem eru í leikformi og nota gæðin sem þeir koma með.“

Stuðningsmenn Liverpool bauluðu á Slot og leikmenn, en þó virðast spjótin aðallega beinast að Slot sem er sagður sitja í heitu sæti.

„Ég held og býst við því að þessu hafi verið beint að liðinu sem ég skil fullkomlega enda auðvelt að finna fyrir svekkelsinu að tapa stigum heima gegn Tottenham sem hefur verið slakt í síðustu leikjum,“ sagði Slot.
Athugasemdir
banner