Besta deild kvenna hefst eftir rúman mánuð en í síðasta þætti af Uppbótartímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur yfir stöðu mála hjá liðunum.
Magnús Haukur setti fram síðustu ótímabæru spána fyrir deildina en næst er bara komið að raunverulegu spánni sem mun birtast hér á síðunni.
Magnús Haukur setti fram síðustu ótímabæru spána fyrir deildina en næst er bara komið að raunverulegu spánni sem mun birtast hér á síðunni.
Svona er síðasta ótímabæra spáin:
1. Breiðablik
2. FH
3. Stjarnan
4. Þróttur R.
5. Víkingur R.
6. Valur
7. Grindavík/Njarðvík
8. Þór/KA
9. ÍBV
10. Fram
Það er mjög svo erfitt að spá í deildina þar sem undirbúningstímabilið hefur verið óútreiknanlegt og skemmtilegt. Vonandi, fyrir hlutlausa aðdáendur, verður deildin þannig líka.
Athugasemdir



