Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 18:34
Ívan Guðjón Baldursson
„Kosta kannski ekki 50 milljónir en fórna sálinni"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Álvaro Arbeloa bráðabrigðaþjálfari Real Madrid var mjög ánægður eftir frábæran 3-0 sigur gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Hann gagnrýndi gagnrýnisraddir í viðtali að leikslokum en næsti heimaleikur Madrídinga er gegn Elche annað kvöld í La Liga.

„Það voru háværar raddir sem gagnrýndu okkur og sögðu að við myndum tapa þessum leik á heimavelli, en við sönnuðum hvað í okkur býr. Við sönnuðum að við erum Real Madrid. Við höfum aldrei haft efasemdir um getu okkar," sagði Arbeloa sem ræddi svo um Thibaut Courtois, Ferland Mendy og Thiago Pitarch.

„Ég held að við höfum aldrei séð neinn standa sig jafn vel og Thibaut hefur verið að gera hjá Real Madrid, hann er ótrúlegur leikmaður."

Ferland Mendy spilaði fyrri hálfleikinn gegn Man City en var skipt af velli í leikhlé vegna meiðsla. Arbeloa segir að meiðslin líti ekki vel út. Hann bætti því svo við hversu stoltur hann er af ungum og uppöldum leikmönnum Real Madrid.

„Ég skil að fólk hafði efasemdir þegar það sá nafnið hans Thiago í byrjunarliðinu en ég vissi hvað ég var að gera. Thiago er mjög góður fótboltamaður og ég er ánægður fyrir hans hönd. Hann er fulltrúi akademíunnar okkar.

„Við verðum að meta akademíuna að sínum verðleikum. Leikmenn sem koma þaðan kostuðu ekki 50 milljónir eins og aðrir leikmenn en þeir spila af öllu hjarta þegar þeir klæðast treyjunni. Þeir eru tilbúnir til að fórna sálinni fyrir liðið. Ég verð mjög stoltur þegar ég sé þá standa sig svona vel."


Pitarch er yngsti spænski leikmaður til að hafa nokkurn tímann spilað fyrir Real Madrid í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Hann er 18 ára gamall og bætti met Raúl González frá 1996.

„Real Madrid - Man City, þetta er vanalega leikurinn sem ég spila í EA FC í PlayStation. Þetta var eins og að vera í draumi," sagði Pitarch eftir sigurinn magnaða.

   12.03.2026 09:00
Trent: Fólk bjóst við að okkur yrði slátrað

Athugasemdir
banner
banner