Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   fös 13. mars 2026 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Gladbach vann fallbaráttuslaginn
Mynd: EPA
Borussia M. 2 - 0 St. Pauli
1-0 Kevin Stoger ('37 )
2-0 Franck Honorat ('63 )

Borussia Mönchengladbach tók á móti St. Pauli í spennandi fallbaráttuslag til að hefja helgina í efstu deild þýska boltans.

Leikurinn var jafn og tíðindalítill en heimamenn náðu að skora tvö mörk til að tryggja sér sigur. Kevin Stöger gerði fyrsta markið með bylmingsskoti beint úr aukaspyrnu af tæplega 30 metra færi. Sjáðu markið.

Í síðari hálfleik skoraði Franck Honorat með góðu skoti eftir örlítið einbeitingaleysi í varnarlínu gestanna og hefði markvörðurinn mögulega átt að gera betur.

Lokatölur urðu því 2-0 og er St. Pauli í fallsæti með 24 stig eftir 26 umferðir. Gladbach er fjórum stigum og fjórum sætum ofar.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 29 19 7 3 60 29 +31 64
3 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
4 RB Leipzig 29 17 5 7 56 36 +20 56
5 Leverkusen 29 15 7 7 59 39 +20 52
6 Hoffenheim 29 15 6 8 57 43 +14 51
7 Frankfurt 29 11 9 9 54 54 0 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
10 Augsburg 29 9 6 14 36 53 -17 33
11 Union Berlin 29 8 8 13 33 50 -17 32
12 Hamburger 29 7 10 12 32 45 -13 31
13 Köln 29 7 9 13 43 50 -7 30
14 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
15 Werder 29 7 7 15 32 52 -20 28
16 St. Pauli 29 6 7 16 25 50 -25 25
17 Wolfsburg 29 5 6 18 39 65 -26 21
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp
banner