Arsenal er með níu stiga forystu á toppnum eftir sigur á Everton í gær en hinn 16 ára gamli Max Dowman innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki í blálokin.
Everton fékk hornspyrnu og Jordan Pickford fór inn á teiginn í von um að ná jöfnunarmarki. Arsenal kom boltanum frá og Dowman fór framhjá tveimur Everton-mönnum og hljóp upp allan völlinn og skoraði í autt markið.
Dowman fagnaði 16 ára afmæli sínu í lok desember en hann er yngsti markaskorari í sögu úrvalsdeildarinnar. John Terry, fyrrum leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, er mjög hrifinn af honum en hann líkti honum við Lionel Messi.
„Þvílíkur leikmaður. Ég sá hann spila gegn Chelsea fyrir um ári síðan og ég hef ekki séð neinn svífa svona framhjá neinum nema Messi, það er stór samanburður en hann verður í stóru hlutverki hjá Arsenal og enska landsliðinu í framtíðinni," sagði Terry.
Athugasemdir


