Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 15:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Liverpool og Tottenham: Ngumoha byrjar - Salah á bekknum
Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha byrjar í dag
Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha byrjar í dag
Mynd: EPA
Liverpool fær Tottenham í heimsókn í áhugaverðum leik í úrvalsdeildinni klukkan 16:30.

Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha fær tækifærið í byrjunarliði LIverpool en Mohamed Salah þarf að sætta sig við að byrja á bekknum. Alisson snýr aftur eftir að hafa misst af tapinu gegn Galatasaray í vikunni vegna meiðsla. Hugo Ekitike er einnig á bekknum en Cody Gakpo er fremstur. Jeremie Frimpong og Andy Robertson snúa aftur í byrjunarliðið.

Það eru mikil meiðslavandræði hjá Tottenham. Liðið er í stórkostlegum vandræðum og er aðeins stigi frá fallsæti. Aðeins sjö leikmenn eru á bekknum.

Þetta gæti verið síðasti leikur Igor Tudor en liðið steinlá 5-2 gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í vikunni. Guglielmo Vicario er kominn aftur í byrjunarliðið eftir hrikalega frammistöðu Antonin Kinsky gegn Atletico.

Radu Dragusin og Souza koma inn fyrir Cristian Romero sem er frá vegna höfuðmeiðsla og Micky van de Ven sem er í banni. Dominic Solanke kemur inn fyrir Randal Kolo Muani.

Liverpool: Alisson, Frimpong, Gomez, Van Dijk, Robertson, Gravenberch, Szoboszlai, Mac Allister, Ngumoha, Gakpo, Wirtz.
Varamenn: Mamardashvili, Konate, Kerkez, Salah, Chiesa, Jones, Ekitike, Nyoni, Ramsay.

Tottenham: Vicario; Porro, Danso, Dragusin; Spence, Sarr, Gray, Souza; Richarlison, Solanke, Tel.
Varamenn: Kinsky, Austin, Rowswell, Olusesi, Simons, Kolo Muani, Wilson.


Athugasemdir
banner