Max Dowman stelur öllum fyrirsögnum helgarinnar eftir að hafa átt risaframmistöðu í 2-0 sigri Arsenal á Everton, sem kom Arsenal nær Englandsmeistaratitlinum og það þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gamall.
Dowman er einn efnilegasti leikmaður Englands og sýndi Arteta mikið traust á leikmanninn að koma inn gegn þéttskipaðri vörn Everton og breyta leiknum.
Hann átti fyrirgjöfina í fyrra markinu og skoraði síðan eftir frábært einstaklingsframtak í seinna markinu.
Það gerði hann að yngsta markaskorara í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, en Daniel Sturridge, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, var spurður hvernig Dowman ætti að mæta í skólann á mánudag.
Sturridge bauð upp á skemmtileg spor og hrósaði síðan hinum unga Dowman.
„Þetta er væbið sem ég myndi koma með. Við vitum líka hvað það er erfitt að koma inn af bekknum í leik með þennan hraða. Everton gerði Arsenal erfitt fyrir og bara verandi á þessum aldri að koma inn og hafa áhrif. Bæði mörkin koma frá honum og það þarf að gefa honum mikið hrós fyrir því það er erfitt að koma inn og breyta leikjum, sem er nákvæmlega það sem hann gerði,“ sagði Sturridge.
Daniel Sturridge demonstrates how he'd walk into school on Monday if he was Max Dowman ???????? pic.twitter.com/d2axHL8y96
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 14, 2026
Athugasemdir



