Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 22:03
Brynjar Ingi Erluson
England: Man City tókst ekki að vinna West Ham - Titilbaráttunni lokið?
Mavropanos skorar jöfnunarmark West Ham
Mavropanos skorar jöfnunarmark West Ham
Mynd: EPA
West Ham 1 - 1 Manchester City
0-1 Bernardo Silva ('31 )
1-1 Konstantinos Mavropanos ('35 )

Manchester City tókst aðeins að ná í eitt stig til Lundúna er liðið gerði 1-1 jafntefli við West Ham á Ólympíuleikvanginum þar í borg í kvöld og er það nú níu stigum á eftir Arsenal í titilbaráttunni.

Leikurinn bauð ekki ekki upp á taumlausa skemmtun svona fyrsta hálftímann eða svo eða ekki fyrr en Bernardo Silva skoraði laglegt opnunarmark á 31. mínútu.

Hann fékk boltann vinstra megin í teignum eftir gott spil og vippaði boltanum úr þröngu færi yfir Mads Hermansen í markinu. Ótrúlegt mark hjá Portúgalanum.

Forysta Man City varði ekki lengi því aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði gríski varnarmaðurinn Kostas Mavropanos metin með skalla í slá og inn eftir hornspyrnu.

Man City reyndi og reyndi í þeim síðari. Rayan Cherki átti aukaspyrnu sem hafnaði í slá og þá var Marc Guehi grátlega nálægt sigurmarki í uppbótartíma en setti boltann yfir markið.

Pep Guardiola trúði ekki eigin augum og jafntefli niðurstaðan. City-menn skiljanlega niðurlútir enda áfram í öðru sæti og nú níu stigum á eftir Arsenal.

Man City á leik til góða og á eftir að mæta Arsenal á Etihad en þarf líka að treysta á að Lundúnaliðið tapi stigum í öðrum leikjum. Erfitt að sjá Man City vinna upp níu stiga forystu, en það er samt aldrei hægt að afskrifa lærisveina Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner