Stórfurðulegt atvik gerðist rétt fyrir leik Chelsea og Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag en Paul Tierney, dómari leiksins, var þar í aðalhlutverki.
Chelsea er með það að hefð að taka liðshring við miðjuna sem hefur þótt heldur umdeilt og fór þetta gríðarlega í taugarnar á Aston Villa-mönnum þegar liðin áttust við á dögunum.
Þeir héldu í þessa hefð í dag nema í þetta sinn tóku þeir liðshringinn í kringum Tierney, dómara leiksins, sem hreyfði sig ekki, en furðaði sig mikið á því sem var að gerast. Cole Palmer gekk meira að segja svo langt að knúsa Tierney aftan frá.
Allt rosalega sérstakt í kringum þetta, en atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Staðan í leiknum er 1-0 fyrir Newcastle en Anthony Gordon er með eina markið sem hann gerði á 18. mínútu leiksins.
What on earth Referee is doing right in the middle of Chelsea team huddle? ???? #CHENEW pic.twitter.com/E4C4mYq7RY
— The Final Whistle (@Rufus_45) March 14, 2026
Full video of Chelsea players huddling around the referee before kick off
by
u/OkayFine101 in
soccer
Athugasemdir


