Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 15. mars 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Rosenior um liðshringinn: Vonbrigði að sjá dómarann standa í miðjunni
Mynd: Chelsea
Liam Rosenior, stjóri Chelsea á Englandi, segist hafa verið vonsvikinn með að dómarinn Paul Tierney hafi staðið í miðjunni í liðshring Chelsea fyrir leikinn gegn Newcastle í gær.

Rosenior hefur verið að skapa hefðir hjá Chelsea og ein af þeim er að liðið taki liðshring við miðjuna í leikjum.

Það gerðist mjög sérstakt atvik fyrir Newcastle-leikinn en þá stóð Tierney við miðjuna og hópuðust leikmenn Chelsea í kringum hann til að taka liðshring.

Tierney var hálf gáttaður á þessu en Rosenior segist vonsvikinn með dómarann.

„Það er verið að gera rosalega mikið úr þessu. Mér finnst liðið vera að sýna virðingu og því voru mikil vonbrigði að sjá dómarann standandi þarna í miðjum liðshring. Ég veit ekki með þetta, en þetta er ekki í reglunum þannig ég skil ekkert í þessu,“ sagði Rosenior.

Hann var einnig ósáttur með að Chelsea hafi ekki fengið vítaspyrnu þegar Cole Palmer féll í teignum eftir viðskipti sín við Nick Woltemade.

„Ég skil ekki hvernig þeir gátu ekki breytt þessari ákvörðun,“ sagði Rosenior enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner