Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 21:05
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Skoraði þrennu á ellefu mínútum í risasigri - Dalvík/Reynir í undanúrslit
Árni Steinn setti þrennu á ellefu mínútum í 10-0 sigri
Árni Steinn setti þrennu á ellefu mínútum í 10-0 sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir er komið í undanúrslit B-deildarinnar
Dalvík/Reynir er komið í undanúrslit B-deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjölnismenn slátruðu Kormáki/Hvöt, 10-0, og eru áfram með fullt hús stiga í A-riðli B-deildar Lengjubikarsins. KÁ og KV gerðu sex marka jafntefli í sama riðli.

Árni Steinn Sigursteinsson var atkvæðamestur hjá Fjölni, en hann skoraði þrennur á ellefu mínútum í byrjun síðari hálfleiks. Viktor Andri Hafþórsson skoraði tvö og þá komust Bjarni Þór Hafstein, Oskar Wasilewski, Bjarki Fannar Arnþórsson og Aron Fannar Hreinsson einnig á blað ásamt einu sjálfsmarki frá gestunum.

Fjölnir er með 12 stig á toppnum, fimm stigum meira en KV sem gerði 3-3 jafntefli við KÁ.

KV á einn leik til góða og á þá eftir að mæta Fjölni í lokaumferð riðilsins.

Í D-riðli vann Dalvík/Reynir 3-2 sigur á KFA á meðan Höttur lagði Tindastól að velli, 2-1.

Dalvík/Reynir vann riðilinn með 12 stig eða fullt hús stiga.

A-riðill:

Fjölnir 10 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Bjarni Þór Hafstein ('10 )
2-0 Viktor Andri Hafþórsson ('15 )
3-0 Andri Björn Indriðason ('28 , Sjálfsmark)
4-0 Viktor Andri Hafþórsson ('37 )
5-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('49 )
6-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('58 )
7-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('60 )
8-0 Oskar Wasilewski ('63 )
9-0 Bjarki Fannar Arnþórsson ('81 )
10-0 Aron Fannar Hreinsson ('90 )

KÁ 3 - 3 KV
0-1 Eyþór Daði Kjartansson ('13 )
1-1 Ágúst Jens Birgisson ('28 )
2-1 Birkir Brynjarsson ('75 )
2-2 Fuseini Issah ('77 )
3-2 Kristján Ólafsson ('84 )
3-3 Tristan Alex Tryggvason ('90 )

D-riðill:

KFA 2 - 3 Dalvík/Reynir
0-1 Magnús Máni Sigursteinsson ('10 )
1-1 Eggert Gunnþór Jónsson ('34 )
1-2 Hektor Bergmann Garðarsson ('61 )
2-2 Hjörtur Freyr Ævarsson ('75 , Sjálfsmark)
2-3 Gabriel Lukas Freitas Meira ('76 )

Höttur 2 - 1 Tindastóll
1-0 Hrafn Sigurðsson ('15 )
2-0 Heiðar Logi Jónsson ('68 )
2-1 Haukur Ingi Ólafsson ('90 )

C-deild D-riðill:

Elliði 3 - 0 Hamrarnir
1-0 Andri Már Hermannsson ('2 )
2-0 Pétur Óskarsson ('52 )
3-0 Viktor Máni Róbertsson ('83 )
Athugasemdir
banner