Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 23:08
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Fylkir vann í miklum systraslag
Kvenaboltinn
Systurnar mættust í Árbænum í dag
Systurnar mættust í Árbænum í dag
Mynd: Fylkir og Völsungur
Fylkir 3 - 1 Völsungur
1-0 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('4 )
2-0 Birta Margrét Gestsdóttir ('7 )
2-1 Ragnheiður Sara Steindórsdóttir ('9 )
3-1 Birta Margrét Gestsdóttir ('45 )

Fylkir vann Völsung, 3-1, í miklum systraslag í C-deild Lengjubikars kvenna á tekk-vellinum í dag.

Þetta var ansi athyglisverður leikur að því leyti að tvö systrapör voru sitt hvorum megin við miðjuna.

Guðrún Þóra Geirsdóttir og Hildur Anna Brynjarsdóttir leika með Fylki á meðan yngri systur þeirra Guðný Helga Geirsdóttir og Erla Þyrí Brynjarsdóttir leika með Völsungi.

Guðrún og Hildur byrjuðu hjá Fylki á meðan Guðný byrjaði hjá Völsungi, en Erla Þyrí kom inn af bekknum í síðari hálfleik,

Hildur Anna skoraði einmitt fyrsta mark Fylkis á 4. mínútu áður en Birta Margrét Gestssdóttir bætti við öðru þremur mínútum síðar.

Ragnheiður Sara Steindórsdóttir minnkaði muninn á 9. mínútu áður en Birta Margrét gerði þriðja og síðasta mark Fylkis undir lok fyrri hálfleiks.

Fylkir er á toppnum með 7 stig eftir þrjá leiki en Völsungur í öðru sæti með 3 stig eftir tvo leiki. Fjölnir á möguleika á að ná Fylki en til þess þarf liðið að vinna stóra sigra gegn KÞ og Völsungi.
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar kvenna
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner