Liam Rosenior svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag fyrir stórleik morgundagsins þegar Chelsea mætir Newcastle.
Chelsea tapaði 5-2 gegn Paris Saint-Germain í nokkuð jöfnum leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku, þar sem heimamenn í París nýttu færin sín til hins ítrasta.
Byrjunarliði Chelsea var lekið í fjölmiðla átta klukkustundum fyrir upphafsflautið og segir Rosenior að það verður tekið á málinu innanhúss.
„Ég er viss um að við munum komast til botns í þessu máli. Svona hlutir gerast oft í fótboltanum, við fáum til dæmis upplýsingar um andstæðinga okkar fyrir leiki," sagði Rosenior og talaði svo um leikinn gegn PSG. Þar sagðist hann vera sérstaklega ósáttur með síðasta mark leiksins, þegar PSG spilaði sig mjög auðveldlega upp úr veikri pressu Chelsea til að gulltryggja sigurinn með marki nokkrum sekúndum eftir lok uppgefins uppbótartíma.
„Við erum mjög nálægt því að vera framúrskarandi lið, við vorum frábærir á löngum köflum gegn PSG. Meira að segja þegar við vorum 4-2 undir vorum við ennþá með í leiknum. Fimmta markið særði mig mest og er eitthvað sem má ekki gerast, þetta er eitthvað sem ég verð að finna lausn á."
Rosenior tjáði sig einnig um Filip Jörgensen, afdrifarík mistök hans sem gáfu PSG mark og viðbrögð Enzo Fernández í kjölfarið sem virtist hrauna yfir Jörgensen.
„Ég er búinn að skoða þetta allt aftur og þegar kemur að Filip Jörgensen þá get ég ekki annað sagt en að þetta er leikmaður fullur af ástríðu sem vill vinna fótboltaleiki. Enzo elskar Filip og vill allt það besta fyrir hann. Á þessari stundu var hann pirraður, það er ekki flóknara en það."
13.03.2026 14:13
Rosenior: Treysti þeim báðum
Athugasemdir



