Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri tapaði fyrir Frakklandi, 2-1, í undankeppni Evrópumótsins í dag.
Frakkar náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks og bættu við hana undir lok þess síðari.
Í uppbótartíma minnkaði Arna Ísold Stefánsdóttir muninn en lengra komst íslenska liðið ekki og 2-1 tap niðurstaðan.
Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins í seinni umferðinni í undankeppninni, en næst mætir það Austurríki á þriðjudag en sá leikur hefst klukkan 10:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands: Tinna María Heiðdísardóttir (M), Anika Jóna Jónsdóttir, Anna Heiða Óskarsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Elísa Birta Káradóttir, Arna Ísold Stefánsdóttir, Kara Guðmundsdóttir, Hafrún Birna Helgadóttir, Rósa María Sigurðardóttir, Fanney Lísa Jóhannesdóttir, Unnur Thorarensen Skúladóttir.
Athugasemdir

