Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 20:44
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Dramatík í Freiburg - Ekkert fær Undav stöðvað
Deniz Undav skoraði sextánda deildarmark sitt á leiktíðinni
Deniz Undav skoraði sextánda deildarmark sitt á leiktíðinni
Mynd: EPA
Deniz Undav er að eiga ótrúlegt tímabil með Stuttgart en hann var enn og aftur hetja liðsins er það vann 1-0 sigur á RB Leipzig í Evrópubaráttuleik í þýsku deildinni í dag.

Undav skoraði sigurmarkið á 56. mínútu sem var hans sextánda deildarmark á tímabilinu.

Markvörðurinn Maarten Vandevoort hafði átt frábæran leik í marki Leipzig, en gerði mistök er slök sending hans hafnaði fyrir fætur Chris Fuhrich sem fann Undav og kom sigurmarkið í kjölfarið.

Undav er annar markahæsti leikmaður deildarinnar en getur gleymt markakóngstitlinum enda er Harry Kane með fjórtán marka forskot þegar átta umferðir eru eftir.

Markið engu síður mikilvægt og er Stuttgart í 4. sæti með 50 stig, þremur stigum á undan Leipzig sem er í 5. sæti.

Union Berlín vann dramatískan 1-0 sigur á Freiburg á útivelli. Suður-Kóreumaðurinn Jeong Woo-Yeong gerði sigurmarkið á annarri mínútu í uppbótartíma með laglegu skoti hægra megin úr teignum.

Dýrmætt hjá Union sem er í 9. sæti með 31 stig, þremur á eftir Freiburg.

Mainz fjarlægðist fallbaráttuna með 2-0 sigri á Werder Bremen. Paul Nebel og Jae-Sung Lee skoruðu mörk Mainz sem komu liðinu upp í 13. sæti með 27 stig, þremur fyrir ofan fallsæti, en Bremen er í 15. sæti með 25 stig.

Freiburg 0 - 1 Union Berlin
0-1 Woo-Yeong Jeong ('90 )

Werder 0 - 2 Mainz
0-1 Paul Nebel ('6 )
0-2 Lee Jae Sung ('52 )

Stuttgart 1 - 0 RB Leipzig
1-0 Deniz Undav ('56 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Stuttgart 26 15 5 6 51 34 +17 50
4 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
5 RB Leipzig 26 14 5 7 48 35 +13 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 26 9 7 10 37 43 -6 34
9 Union Berlin 26 8 7 11 31 42 -11 31
10 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
11 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Mainz 26 6 9 11 31 41 -10 27
14 Werder 26 6 7 13 29 47 -18 25
15 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner