Tvö efstu lið Championship-deildarinnar töpuðu stigum í hádegisleikjum deildarinnar.
Coventry fékk Southampton í heimsókn og lenti í miklu brasi. Þeir lentu undir snemma í seinni hálfleik og seint í leiknum bætti Kuryu Matsuki við marki. Coventry minnkaði muninn í blálokin en komust ekki lengra.

Á sama tíma fékk Middlesbrough jöfnunarmark á sig á lokamínútu uppbótartímans gegn Bristol City á heimavelli.
Coventry er með 77 stig á toppnum en Middlesbrough er í öðru sæti með 70 stig. Boro hefur aðeins náð í eitt stig í síðustu tveimur leikjum og Millwall getur komist upp fyrir þá í annað sætið á eftir.
Charlton náði þá að bjarga stigi gegn Oxford með jöfnunarmarki úr víti í uppbótartíma.
Coventry 1 - 2 Southampton
0-1 Flynn Downes ('48 )
0-2 Kuryu Matsuki ('85 )
1-2 Victor Torp ('90 , víti)
Oxford United 1 - 1 Charlton Athletic
1-0 Cameron Brannagan ('57 , víti)
1-1 Charlie Kelman ('90 , víti)
Middlesbrough 1 - 1 Bristol City
1-0 Leo Castledine ('65 )
1-1 Adam Randell ('90 )
Athugasemdir