Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   lau 14. mars 2026 18:15
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Liðsfélagar Andra unnu toppbaráttulið - Þriggja marka sigur WBA
Milwall missti af tækifærinu til að komast upp í annað sætið
Milwall missti af tækifærinu til að komast upp í annað sætið
Mynd: Millwall
Millwall mistókst að komast upp í annað sæti ensku B-deildarinnar er liðið tapaði fyrir Andra Lucasi Guðjohnsen og félögum hans í Blackburn Rovers, 2-1, í dag.

Blackburn var að vísu án Andra í leiknum sem yfirgaf völlinn í síðasta leik á hækjum en óvíst er hvenær hann snýr aftur til leiks með liðinu.

Blackburn lenti undir snemma í síðari hálfleiknum en rautt spjald Zak Sturge, leikmanns Millwall, breytti gangi leiksins og þá sérstaklega Daninn Mathias Jörgensen sem skoraði tvennu á fimm mínútum og hafði Blackburn 2-1 sigur.

Millwall er því í 4. sæti með 68 stig en Blackburn í 19. sæti með 42 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Fallbaráttuliðin voru að gera góða hluti í dag. WBA vann 3-0 sigur á Hull City en gestirnir í Hull spiluðu manni færri í klukkutíma. WBA er í 21. sæti með 40 stig en Hull í 5. sæti með 63 stig.

Leicester tapaði fyrir QPR, 3-1. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Leicester sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Sex stig voru dregin af Leicester fyrir brot á fjárhagsreglum og er því í næst neðsta sæti með 38 stig, þó aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti.

Birmingham 1 - 1 Sheffield Utd
1-0 Marvin Ducksch ('25 )
1-0 Sydie Peck ('30 , Misnotað víti)
1-1 Patrick Bamford ('45 )
Rautt spjald: Femi Seriki, Sheffield Utd ('23)

Millwall 1 - 2 Blackburn
1-0 Luke Cundle ('54 )
1-1 Mathias Jorgensen ('80 )
1-2 Mathias Jorgensen ('85 )
Rautt spjald: Zak Sturge, Millwall ('59)

West Brom 3 - 0 Hull City
1-0 Josh Maja ('24 )
2-0 Aune Heggebo ('67 )
3-0 Isaac Price ('90 )
Rautt spjald: Charlie Hughes, Hull City ('36)

Norwich 2 - 0 Preston NE
1-0 Ali Ahmed ('17 )
2-0 Kenny McLean ('39 )

Leicester City 1 - 3 QPR
1-0 Jordan James ('14 )
1-1 Harvey Vale ('43 )
1-2 Benjamin Nelson ('50 , sjálfsmark)
1-3 Ronnie Edwards ('58 )

Sheffield Wed 0 - 2 Ipswich Town
0-1 Ivan Azon ('78 )
0-2 Jack Clarke ('83 , víti)

Stoke City 3 - 1 Watford
1-0 Million Manhoef ('28 )
2-0 Million Manhoef ('77 )
2-1 Nestory Irankunda ('81 )
3-1 Sam Gallagher ('85 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 42 25 10 7 84 42 +42 85
2 Ipswich Town 41 21 12 8 71 42 +29 75
3 Millwall 42 21 10 11 56 47 +9 73
4 Southampton 42 20 12 10 73 50 +23 72
5 Middlesbrough 42 20 12 10 62 42 +20 72
6 Hull City 42 20 8 14 64 60 +4 68
7 Wrexham 42 17 13 12 63 60 +3 64
8 Derby County 42 18 9 15 61 53 +8 63
9 Norwich 42 17 7 18 55 50 +5 58
10 Bristol City 42 16 10 16 52 51 +1 58
11 QPR 42 16 10 16 58 63 -5 58
12 Watford 42 14 15 13 52 51 +1 57
13 Preston NE 42 14 15 13 50 53 -3 57
14 Swansea 42 16 9 17 50 54 -4 57
15 Birmingham 42 15 11 16 51 52 -1 56
16 Stoke City 42 15 10 17 49 46 +3 55
17 Sheffield Utd 42 16 6 20 59 59 0 54
18 Charlton Athletic 42 12 13 17 39 51 -12 49
19 Portsmouth 42 12 12 18 43 57 -14 48
20 Blackburn 43 12 12 19 38 53 -15 48
21 West Brom 42 11 13 18 42 56 -14 46
22 Oxford United 42 10 14 18 41 54 -13 44
23 Leicester 42 11 14 17 54 64 -10 41
24 Sheff Wed 42 1 11 30 25 82 -57 -4
Slapp
banner