Það var nóg um að vera í kvennaboltanum í Evrópu í dag en María Catharina Gros Ólafsdóttir komst meðal annars áfram í sænska bikarnum og þá var Sigdís Eva Bárðardóttir á skotskónum.
Telma Sif Búadóttir var í byrjunarliði Österbro sem tapaði fyrir Thisted, 2-0, á heimavelli. Österbro er án stiga í meistarariðli B-deildarinnar sem var að hefjast.
Guðrún Hermannsdóttir lék hálftíma með Esbjerg sem tapaði fyrir Viborg, 1-0, í fallriðli deildarinnar. Esbjerg er á botni riðilsins.
Hin 16 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn af bekknum í 3-3 jafntefli Nordsjælland gegn Köge. Hún hefur verið að fá margar mínútur í síðustu leikjum, en hún gekk í raðir Nordsjælland frá Gróttu á síðasta ári.
Nordsjælland er í 5. sæti úrvalsdeildarinnar með 22 stig.
Sigdís Eva Bárðardóttir var á skotskónum með Nordsjælland sem tapaði fyrir Maríu Catharinu Ólafsdóttur Gros og stöllum í Djurgården, 4-2, í þriðju umferð í riðlakeppni sænska bikarsins.
Djurgården vann riðilinn með 9 stig en Norrköping hafnaði í öðru með 6 stig.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir byrjaði hjá RB Leipzig sem gerði 2-2 jafntefli við Union Berlín í þýsku úrvalsdeildinni. Leipzig er í 10. sæti með 22 stig.
Ásdís Karen Halldórsdóttir lék fyrri hálfleikinn í 1-1 jafntefli Braga gegn Torreense í portúgölsku úrvalsdeildinni. Braga er í 5. sæti með 17 stig eftir þrettán umferðir.
Bergrós Ásgeirsdóttir var í liði Aarau sem tapaði fyrir Zurich, 2-0, í svissnesku úrvalsdeildinni. Aarau er í næst neðsta sæti deildarinnar með 6 stig.
Andrea Rut Bjarnadóttir byrjaði hjá Anderlecht sem tapaði fyrir Gent, 2-0, í belgísku deildinni og þá byrjaði Vigdís Lilja Kristjánsdóttir á bekknum. Högg fyrir Anderlecht sem hefur verið í harðri titilbaráttu við Leuven.
Leuven á leik til góða og getur náð tíu stiga forystu á toppnum.
Athugasemdir


