Gabriel, varnarmaður Arsenal, var ekki lengi að birta mynd af sér á samfélagsmiðlum eftir sigur á erkifjendunum í Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Leikurinn endaði með 4-1 sigri en Gabriel birti mynd úr liðsrútunni þar sem hann hélt á spilastokk. Einu spilinu er snúið við en það er fjarki sem gefur væntanlega til kynna hversu mörg mörk Arsenal skoraði í leiknum. Arsenal vann fyrri leikinn gegn Tottenham í deildinni einnig 4-1.

Það sem meira er þá merkti Gabriel liðsfélaga sinn úr brasilíska landsliðinu, Richarlison, á myndina. Richarlison er auðvitað leikmaður Tottenham en hann hefur væntanlega ekki haft neitt gaman að þessu.
Það höfðu samt sem áður margir gaman að þessu miðað við viðbrögðin á Instagram. Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er á meðal þeirra sem bregðast við myndinni en hann setur nokkur lyndistákn sem gefa til kynna að hann sé að springja úr hlátri.
Declan Rice, Chloe Kelly og Gabriel Martinelli bregðast einnig við myndinni á svipaðan hátt.
Eftir sigurinn í gær er Arsenal með fimm stiga forskot á toppi ensku deildarinnar en Man City, sem er í öðru sæti, á þó leik til góða.
Athugasemdir