Ný vika hafin og nóg framundan í fótboltanum. Við byrjum þennan mánudag á að fara yfir það helsta í slúðrinu.
Manchester City þarf að berjast um að halda Rodri (29) hjá félaginu í sumar en bæði Barcelona og Real Madrid vilja fá hann í sínar raðir. (Bild)
Liverpool vonast til að landa Zeki Celik (29), bakverði Roma, en umboðsmaður leikmannsins sagði nýverið að það væri ekkert samkomulag í höfn við Juventus sem hefur líka áhuga á leikmanninum. (Mirror)
Arsenal og Chelsea eru að berjast við Barcelona um Julian Alvarez (26), framherja Atletico Madrid. (TeamTalk)
Guglielmo Vicario (29) markvörður Tottenham, er efstur á óskalista Juventus fyrir sumarið en Inter hefur líka áhuga. (Gazzetta dello Sport)
Newcastle mun bara selja sóknarmanninn Nick Woltemade (24) í sumar ef hann biður um að fá að fara frá félaginu. (Football Insider)
Arsenal leiðir baráttuna við Manchester City og Newcastle um Ivan Fresneda (21), bakvörð Sporting í Portúgal. (Fichajes)
Ef Fresneda kemur til Arsenal þá gæti það þýtt að Ben White (28) yfirgefi félagið. (TeamTalk)
Manchester United og Arsenal eru líklegust til að landa Nathaniel Brown (22), varnarmanni Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. (CaughtOffside)
Chelsea mun mögulega leyfa Trevoh Chalobah (26) að fara til Aston Villa í sumar. (Football Insider)
Athugasemdir



