Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 20:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Thelma Karen á skotskónum í ellefu marka sigri
Kvenaboltinn
Mynd: BK Häcken
Hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir gekk til liðs við Hacken í Svíþjóð frá FH fyrir áramót. Hún opnaði markareikninginn í keppnisleik fyrr í þessum mánuði þegar hún skoraði í 7-0 sigri á Breiðabliki í Evrópubikarnum.

Hacken heimsótti Gefle í fyrstu umferð í sænska bikarnum í kvöld og vann 11-0 stórsigur. Staðan var 7-0 í hálfleik en Thelma skoraði annað mark liðsins. Hún var síðan tekin af velli eftir klukkutíma leik. Fanney Inga Birkisdóttir sat allan tímann á bekknum.

Guðrún Arnardóttir var ekki með Hammarby þegar liðið vann gömlu félagana hennar í Rosengård 4-0.

Ingibjörg Sigurðardóttir spilaði 69 mínútur þegar Freiburg tapaði 3-0 gegn Frankfurt í þýsku deildinni. Freiburg hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum og situr í 7. sæti með 27 stig eftir 19 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner