Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 24. desember 2020 09:30
Aksentije Milisic
Mourinho reiður út í Alli - „Á að skapa færi en ekki vandræði"
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var ekki sáttur með Dele Alli í leiknum gegn Stoke City í deildabikarnum í gær.

Tottenham vann leikinn með þremur mörkum gegn einu og komst í undanúrslit bikarsins þar sem liðið mætir Brentford á heimavelli.

Stoke jafnaði leikinn í 1-1 eftir skyndisókn. Alli tapaði boltanum sem varð til þess að heimamenn fóru í sókn og skoruðu. Hann var ekki sáttur með Alli í því atviki.

„Hann er leikmaður sem spilar í þannig stöðu að hann á að tengja saman spil og búa til færi. Hann á ekki að búa til vandræði fyrir sitt eigið lið."

Hann brást illa við þegar Mourinho tók hann af velli í leiknum í gærkvöldi.

Dele Alli hefur lítið spilað fyrir Tottenham á þessari leiktíð og er hann að öllum líkindum á leiðinni burt frá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner