Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 30. apríl 2022 15:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp: Milner gefur öllum hópnum orku
Mynd: EPA

Liverpool sigraði Newcastle með einu marki gegn engu.


Hinn 36 ára gamli James Milner var frábær í dag og hljóp mikið og var mikið í mönnum. Hann náði boltanum af Fabian Schar í aðdragandanum á markinu.

Jurgen Klopp var gríðarlega ánægður með Milner í leikslok.

„Hann var allt í öllu. Alveg ótrúlegur, hann gefur öllum hópnum orku, það er ekki auðvelt auk þess er hann topp fótboltamaður. Hann átti frábæran leik og mér leist mjög vel á marga leikmenn í dag," sagði Klopp.

Liverpool er á toppi deildarinnar í bili að minnsta kosti en Manchester City getur endurheimt toppsætið síðar í dag með sigri á Leeds United.


Athugasemdir
banner
banner