Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 31. ágúst 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kemur Gerrard til varnar: Heldur þú að Pep og Klopp hafi ekki gert þetta?
Mynd: Getty Images

Steven Gerrard stjóri Aston Villa er undir mikilli pressu en liðið hefur ekki byrjað nægilega vel í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.


Liðið er með þrjú stig eftir fjóra leiki en margir telja að hann verði næstur til að taka pokann sinn. Robbie Fowler fyrrum samherji Gerrard hjá Liverpool er alls ekki sammála því.

Hann segist ekki vita hvort hann eigi að hlæja eða gráta þegar hann heyrir menn tala um að það eigi að reka Gerrard.

„Já, hann hefur tekið erfiðar ákvarðanir, gagnrýnt leikmenn. Það er það sem stjórar fá borgað fyrir. Helduru virkilega að Klopp og Guardiola geri það ekki?"

„Pep var í stríði gegn Zlatan til að koma honum frá Barcelona. Klopp gat ekki komið Mamadou Sakho nógu fljótt frá Liverpool, ég er nokkuð viss um að hann hafi skutlað honum út á flugvöll," sagði Fowler.

„Þegar þú kemur í nýtt félag þarftu að taka stórar ákvarðanir, hverjir henta þínum þjálfunar aðferðum."


Athugasemdir
banner
banner