Hörður Sveinsson hefur náð samkomulagi við Reyni Sandgerði um að leika áfram með liðinu á komandi tímabili.
Reynir fór upp um deild og endaði í 2. sæti 3. deildar í sumar. Hörður skoraði tíu mörk í tuttugu leikjum með liðinu.
Reynir fór upp um deild og endaði í 2. sæti 3. deildar í sumar. Hörður skoraði tíu mörk í tuttugu leikjum með liðinu.
Hörður, sem er 37 ára Keflvíkingur, hefur leikið 373 mótsleiki hér á landi og skorað í þeim 149 mörk.
Einnig lék hann á sínum tíma sex leiki í evrópukeppni með Keflavík og skoraði í þeim fimm mörk ásamt því að leika 13 leiki með yngri landsliðum Íslands og skoraði í þeim 3 mörk.
Þá lék hann um tíma með Silkeborg í Danmörku.
„Höddi var gríðarlega mikilvægur hlekkur í þeim góða árangri sem lið okkar náði í sumar þegar hann skoraði 10 mikilvæg mörk í 3. deild Íslandsmótsins."
„Stjórn ksd. Reynis gleðst yfir samkomulaginu og hlakkar til að sjá Hödda á vellinum með okkur á komandi sumri," segir í tilkynningu Reynis.
Athugasemdir