Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 31. desember 2020 21:15
Victor Pálsson
Rudiger spilaði frammi með Brooks og Kiesewetter
Mynd: Getty Images
Það kemur kannski einhverjum á óvart en varnarmaðurinn Antonio Rudiger hóf ferilinn sem vængmaður hjá liði Hertha Zehlendorf í Þýskalandi.

Rudiger greinir sjálfur frá þessu en hann lék í sókninni þar ásamt John Brooks sem er varnarmaður bandaríska landsliðsins í dag.

Rudiger er ekki beint þekktur fyrir að vera góður á boltanum en er ansi röskur og hefur það hjálpað honum í byrjun ferilsins.

„Ég lék með Hertha Zehlendorf og þar spilaði ég sem sóknarmaður ásamt John Brooks sem er í dag varnarmaður Wolfsburg," sagði Rudiger.

„Við skipuðum þriggja manna sóknarlínu, John fyrir miðju, ég var vinstra megin og Jerome Kiesewetter var hægra megin. Hann spilar í dag fyrir Inter Miami á hægri vængnum."

„Ég og Jerome vorum ansi fljótir og John var tæknilega góður og stór. Hann skallaði flest allt í netið."
Athugasemdir
banner
banner
banner