Heimild: Heimasíða Liverpool
Liverpool hefur staðfest að Blackpool hafi samþykkt tilboð frá félaginu í Charlie Adam.
Leikmaðurinn mun nú ferðast til Merseyside og gangast undir læknisskoðun og ræða launamál.
Liverpool hefur lengi verið á eftir Adam og reyndi að fá hann til liðsins í janúar en mistókst.
Hann verður annar leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar því félagið keypti Jordan Henderson frá Sunderland.
Adam var besti maður Blackpool sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en hann er frá Skotandi.