Hólmbert Aron Friðjónsson opnaði markareikning sinn fyrir Bröndby í 2-2 jafntefli gegn Esbjerg á útivelli í gær.
Hólmbert, sem er á láni hjá Bröndby frá skosku meisturunum í Celtic, kom inn á sem varamaður þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
Eftir einungis fimm mínútur á vellinum var Hólmbert búinn að jafna metin í 2-2, en hin þrjú mörkin komu öll í upphafi seinni hálfleiks.

Hér að neðan má sjá myndband af marki Hólmberts en það kemur eftir 50 sekúndur.
Athugasemdir