Hinn nýji Wembley verður opnaður í mars 2006, opnunarleikurinn verður U21 landsleikur eða kannski landsleikur skólaliða! Áður var reiknað með að úrslitaleikur FA bikarsins 2006 yrði opnunarleikur vallarins en nú er ljóst að fyrst þarf að fara fram "prufuleikur" á honum af öryggisástæðum! Leikur sem myndi fylla aðeins helming til 2/3 af áhorfendasvæðunum.
Völlurinn mun taka 90.000 áhorfendur, sem gerir hann að langstærsta velli Bretlandseyja, en á þessum prufuleik þyrfti að vera 30 - 60 þúsund áhorfendur.
Undirbúningur við byggingu vallarins hófst 1995. Allir sem koma að honum segja að hann verði sá mesti og besti í öllum heiminum enda er engu til sparað, hann mun kosta um 757 milljónir punda fullgerður, byggingarland í London er ótrúlega dýrt og þá þurti að rífa gamla Wembley völlinn niður sem kostaði sitt.


