Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 03. febrúar 2018 14:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enginn leikmaður Burnley kemur að fleiri mörkum en Jói Berg
Mynd: Getty Images
Enginn annar leikmaður Burnley hefur komið að jafnmörgum mörkum og Jóhann Berg Guðmundsson á þessu tímabili.

Jóhann hefur verið duglegur að leggja upp en í dag var hann á skotskónum gegn Manchester City. Hann bjargaði stigi fyrir Burnley þegar liðið mætti Man City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

City komst yfir með marki Danilo í fyrri hálfleiknum, en Jóhann Berg jafnaði metin á 82. mínútu.

Þetta var annað deildarmark hans á tímabilinu en hann hefur lagt upp fimm. Hann hefur því komið að sjö deildarmörkum Burnley, meira en nokkur annar leikmaður liðsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner