Króatíski miðvörðurinn Duje Ćaleta-Car er í læknisskoðun hjá Southampton.
Enska úrvalsdeildarfélagið er að kaupa hann frá Marseille á 10 milljónir punda til að fylla í skarðið sem Jan Bednarek skilur eftir sig.
Caleta-Car, sem verður 26 ára um miðjan september, á 23 landsleiki að baki og endaði í öðru sæti HM 2018 eftir tap í úrslitaleiknum gegn Frakklandi.
Hann verður sjöundi leikmaðurinn til að ganga í raðir Southampton í sumar.
Athugasemdir