Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Missti fingur og var laminn - Bíður nú eftir að vera handtekinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stuðningsmaður Inter sem fylgdi liðinu á útileik gegn Cremonese í gær átti mögulega versta dag lífs síns.

Hann var með öðrum ultras stuðningsmönnum Inter fyrir aftan mark sinna manna í fyrri hálfleik en Emil Audero, sem lék hjá Inter á láni tímabilið 2023-24, var á milli stanga Cremonese. Hann færði sig yfir á hinn vallarhelminginn fyrir seinni hálfleikinn og var þá með stuðningsmenn Inter bakvið sig.

Fyrrnefndur stuðningsmaður Inter ákvað að kveikja í litlum flugeldi og kasta honum að Audero, þar sem hann sprakk. Audero kastaði sér í jörðina við hvellinn.

Federico Dimarco, Lautaro Martínez og Alessandro Bastoni leikmenn Inter voru fljótir að Audero þar sem hann lá í jörðinni og skömmuðu stuðningsmennina. Christian Chivu þjálfari blandaði sér líka í málið og tók undir skammir lærlinga sinna.

Sökudólgurinn fannst ekki strax en hann ákvað að bregða á það ráð að kveikja í öðrum flugeldi. Honum mistókst þó að kasta flugeldinum frá sér og sprakk hann í höndum mannsins sem missti tvo eða þrjá fingur í leiðinni.

Eftir að upp komst um manninn réðust aðrir stuðningsmenn Inter að honum og lömdu hann á meðan hringt var á sjúkrabíl.

Núna er viðkomandi staddur á spítala í Cremona þar sem hann verður handtekinn við útskrift.

Inter getur búist við 50 þúsund evru sekt fyrir atvikið og gæti stjórn ítölsku deildarinnar ákveðið að refsa stuðningsmönnum með því að loka 'ultras' hluta stúkunnar hjá Inter í næsta heimaleik, sem er Ítalíuslagurinn svokallaði gegn Juventus.

Leikmenn Inter og forseti félagsins fordæmdu hegðun stuðningsmannsins eftir leik, en hann getur einnig átt von á lífstíðarbanni frá ítalska boltanum.

Inter vann leikinn og trónir sem fyrr á toppi ítölsku deildarinnar.

   01.02.2026 19:13
Ítalía: Nico Paz klúðraði - Inter vann


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 18 1 4 52 19 +33 55
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Juventus 23 13 6 4 39 18 +21 45
5 Roma 22 14 1 7 27 13 +14 43
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
10 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
11 Udinese 22 8 5 9 25 34 -9 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
15 Cremonese 23 5 8 10 20 31 -11 23
16 Parma 23 5 8 10 15 30 -15 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner
banner
banner