Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 01. febrúar 2026 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Nico Paz klúðraði - Inter vann
Mynd: EPA
Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í ítalska boltanum þar sem Como gerði jafntefli við tíu leikmenn Atalanta í áhugaverðum slag.

Miðvörðurinn ungi Honest Ahanor lét reka sig af velli snemma leiks eftir að hafa slegið til Máximo Perrone og voru tíu leikmenn Atalanta í nauðvörn allan leikinn.

Como skapaði sér færi eftir færi en tókst ekki að skora framhjá Marco Carnesecchi sem hefur ekki átt gott tímabil til þessa. Carnesecchi varði nokkrum sinnum meistaralega og klúðruðu heimamenn dauðafærum svo staðan hélst markalaus. Como fékk svo úrvalsfæri til að sigra leikinn þegar vítaspyrna var dæmd seint í uppbótartíma.

Nico Paz steig á vítapunktinn á 98. mínútu en Carnesecchi varði frá honum til að bjarga stigi. Ótrúleg frammistaða hjá Carnesecchi en Como var með 5,24 í xG í þessum leik.

Lautaro Martínez og Piotr Zielinski skoruðu þá mörkin er topplið Inter lagði nýliða Cremonese að velli. Mörkin komu bæði í fyrri hálfleik.

Inter var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en það ríkti jafnræði á vellinum eftir leikhlé. Lokatölur urðu þó 0-2 og er Inter með átta stiga forystu á toppi deildarinnar. Nágrannar þeirra í Milan geta minnkað bilið annað kvöld þegar þeir spila afar erfiðan leik við Roma.

Að lokum hafði Torino betur gegn Lecce þar sem fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Nikola Vlasic og Ché Adams tengdu til að skora eina mark leiksins.

Þórir Jóhann Helgason var ekki í hóp hjá Lecce þar sem hann virðist vera á leið til Feneyja.

Como 0 - 0 Atalanta
0-0 Nico Paz ('98, Misnotað víti)
Rautt spjald: Honest Ahanor, Atalanta ('8)

Cremonese 0 - 2 Inter
0-1 Lautaro Martinez ('16 )
0-2 Piotr Zielinski ('31 )

Torino 1 - 0 Lecce
1-0 Che Adams ('29 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner