Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
banner
   þri 03. febrúar 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Alonso á þriggja manna lista City - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
Powerade
Xabi Alonso er orðaður við Man City.
Xabi Alonso er orðaður við Man City.
Mynd: EPA
Rashford vill vera áfram hjá Barcelona.
Rashford vill vera áfram hjá Barcelona.
Mynd: EPA
Malacia var á leið til Besiktas þegar Man Utd sagði nei.
Malacia var á leið til Besiktas þegar Man Utd sagði nei.
Mynd: EPA
Gluggadagurinn í gær var með rólegasta móti og lítið í gangi hjá enskum úrvalsdeildarfélögum. Þrátt fyrir það er ýmislegt í gangi í slúðrinu.

Það eru taldar auknar líkur á því að þetta sé síðasta tímabil Manchester City undir stjórn Pep Guardiola. Xabi Alonso, fyrrum miðjumaður Liverpool, er á þriggja manna lista City yfir mögulegan næsta stjóra. (Telegraph)

Enzo Maresca og Cesc Fabregas eru einnig á listanum. (Telegraph)

Newcastle býr sig undir að fá tilboð í ítalska miðjumanninn Sandro Tonali (25) næsta sumar. Arsenal, Chelsea og Manchester City hafa öll áhuga. (The Sun)

Marcus Rashford (28) er tilbúinn að taka á sig launalækkun til að vera áfram hjá Barcelona eftir að lánssamningurinn rennur út. Hann vill ekki snúa aftur til Manchester United. (Mirror)

Varnarmaðurinn Dayot Upamecano (27) er að fara að skrifa undir nýjan samning við Bayern München. (Fabrizio Romano)

Varnarmaðurinn Cristian Romero (27), fyrirliði Tottenham, heldur áfram að gagnrýna stjórnendur félagsins. Hann segir til skammar að bara ellefu aðalliðsleikmenn hafi verið tiltækir í síðasta leik og gagnrýnir innkaupastefnuna. (BBC)

Hollenski varnarmaðurinn Tyrell Malacia (26) hjá Manchester United er reiður út í yfirmann fótboltamála hjá félaginu, Jason Wilcox, fyrir að koma í veg fyrir félagaskipti sín í janúarglugganum. (Mirror)

Malacia var að fara um borð í flugvél til Tyrklands þar sem hann var á leið í raðir Besiktas þegar Wilcox tjáði honum að hann yrði áfram hjá Manchester United. (TalkSport)

Tottenham hefur tryggt sér táninginn James Wilson (18) á láni frá Hearts, með klásúlu um að geta keypt hann. (BBC)

Raheem Sterling (31) var boðinn til Union Berlin á dögunum en þýska félagið ákvað að bjóða honum ekki samning. (Florian Plettenberg)

Karim Benzema (38) er á förum frá Al-Ittihad til keppinautana í Al-Hilal. Benzema yfirgaf Real Madrid 2023 og hélt til Sádi-Arabíu. (The Athletic)

Tottenham náði ekki að klára samkomulag við Mónakó um franska miðjumanninn Maghnes Akliouche (23) en gæti reynt aftur í sumar. (TeamTalk)

Skoski framherjinn Evan Mooney (18) hefur verið keyptur til Arsenal frá St Mirren og fer beint í akademíu enska stórliðsins. (BBC)
Athugasemdir
banner