Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 10:32
Elvar Geir Magnússon
Besti handboltamaður heims á lægri launum en leikmenn í dönsku fótboltadeildinni
Mathias Gidsel í leik gegn Íslandi
Mathias Gidsel í leik gegn Íslandi
Mynd: EPA
Simon Pytlick, landsliðsmaður Danmerkur í handbolta, er pirraður yfir þeim gríðarlega launamun sem er milli atvinnumanna í fótbolta og handbolta.

Danski miðillinn Euroman fjallar um málið en þar kemur fram að besti handboltamaður heims, Matias Gidsel stórskytta danska landsliðsins, sé með 50 þúsund evrur á mánuði hjá Þýskalandsmeisturum Füchse Berlin.

Hann er til samanburðar á mun lægri launum en launahæstu leikmenn dönsku fótboltadeildarinnar en hún er samkvæmt lista UEFA talin sú þrettánda sterkasta í Evrópu.

Mohamed Elyounoussi, leikmaður FCK, er launahæstur í dönsku deildinni með um 168 þúsund evrur á mánuði samkvæmt Bold.

„Mér finnst þetta út úr kortinu. Þetta er skrítið þegar maður hugsar um hversu miklum tíma við verjum í íþróttina og á hversu háu getustigi við spilum," segir Pytlick.

Þrátt fyrir launamuninn segist Pytlick ekki vilja skipta á því að vera handboltamaður og vera fótboltamaður.

„Þeir fara í gegnum hluti sem handboltamenn upplifa ekki. Þeir fá varla að vera í friði þegar þeir eru meðal almennings," segir Pytlick.
Athugasemdir
banner
banner