Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 03. júlí 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Keflavík mætir Fram og Þróttur spilar við Völsung
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Það eru aðeins fjórir leikir á dagskrá í íslenska boltanum á þessum sunnudegi þar sem Keflavík og Fram takast á í Bestu deild karla.


Liðin eru í 7. og 8. sæti, í neðri hluta deildarinnar, og eru að berjast um að nálgast hið mikilvæga 6. sæti fyrir lok hins klassíska deildartímabils.

KR situr í sjötta sæti sem stendur og er með fimm stigum meira heldur en Keflavík og sex stigum meira en Fram. Keflavík og Fram eiga þó bæði tvo leiki til góða.

Í 2. deild tekur Þróttur R. á móti Völsungi í spennandi toppbaráttuslag. Þróttur er í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum fyrir ofan Völsung.

Að lokum á Reynir Hellissandi heimaleik við Ísbjörninn í 4. deild áður en Afríka tekur á móti Skautafélagi Reykjavíkur.

Besta deild karla
19:15 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)

2. deild karla
16:00 Þróttur R.-Völsungur (Þróttarvöllur)

4. deild karla - A-riðill
16:00 Reynir H-Ísbjörninn (Ólafsvíkurvöllur)

4. deild karla - B-riðill
19:00 Afríka-SR (OnePlus völlurinn)


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner