Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 07. janúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland mætir Þýskalandi í Duisburg
Icelandair
Schauinsland-Reisen-Arena.
Schauinsland-Reisen-Arena.
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM á þessu ári verður gegn Þýskalandi. Sá leikur mun fara fram í Duisburg.

Þýska landsliðið á ekki sérstakan heimavöll og spilar víðs vegar um landið. Ákveðið var að leikurinn gegn Íslandi yrði spilaður Schauinsland-Reisen-Arena í Duisburg. Þess má geta að völlurinn var notaður í 8 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í ágúst síðastliðnum.

Leikurinn fer fram 25. mars næstkomandi og verður það fyrsti landsleikur Íslands undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Það verður jafnframt leikur númer 500 hjá A landsliði karla, en fyrsti leikur A karla var gegn Danmörku þann 17. júlí 1946.

Liðin hafa mæst tvisvar sinnum eftir sameiningu Þýskalands, en þau voru saman í riðli í undankeppni EM 2004. Þýskaland vann 3-0 sigur ytra, en liðin gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli. Ísland og V-Þýskaland mættust einnig tvisvar, en V-Þjóðverjar unnu báða leikina. Ísland mætti A-Þýskalandi 13 sinnum, Ísland vann tvo þeirra, A-Þjóðverjar tíu og einn endaði með jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner