Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Áhorfendur sýndu Ronaldo stuðning
Mynd: EPA
Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo stendur í rifrildum við stjórnendur sádi-arabísku deildarinnar og hefur neitað að spila síðustu tvo leiki Al-Nassr.

Ronaldo telur halla á Al-Nassr þegar kemur að kaupum á nýjum leikmönnum og er þess vegna í verkfalli, honum líður eins og liðið njóti ekki nægs stuðnings frá fótboltayfirvöldum. Stuðningsmenn virðast vera sammála honum miðað við viðbrögðin á síðasta leik liðsins.

Al-Nassr lagði ríkjandi meistara Al-Ittihad að velli án Ronaldo og var það sjötti sigur liðsins í röð í deildinni. Stuðningsmenn Al-Nassr tóku sig til og sýndu Ronaldo stuðning frá pöllunum eins og er hægt að sjá í myndbandi hér fyrir neðan.

Þeir mættu allir með gular sjöur á leikinn og héldu þeim uppi, en Ronaldo klæðist einmitt treyju númer 7 hjá Al-Nassr sem spilar heimaleiki í gulu.

   06.02.2026 11:22
Senda út yfirlýsingu vegna Ronaldo



[The Times] Al-Nassr fans at the match showed their support for Ronaldo in his ongoing strike and dispute with PIF by raising yellow “7” cards in the seventh-minute of the match.
by
u/Sparky-moon in
soccer

Athugasemdir
banner