Heimild: GG Verk
Ásthildur Helgadóttir, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var ráðin til GG Verk og mun verkefnastýra framkvæmdum fyrir Reykjavíkurborg á nýrri íþróttamiðstöð Fram í Úlfársdal.
Ásthildur er M.Sc. byggingarverkfræðingur og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði stýringar í mannvirkjagerð á Íslandi og í Svíþjóð.
Framkvæmdirnar munu uppfylla sérstaka BREEAM umhverfisvottun og draga þannig úr neikvæðum umhverfisáhrifum sem fylgja verkefninu.
Framkvæmdir á svæðinu eru komnar af stað og mun væntanlega ekki ljúka fyrr en árið 2022.
Athugasemdir