Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
banner
   mán 09. febrúar 2026 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Fyrrum Chelsea-maðurinn með laglegt mark í sigri Atalanta
Davide Zappacosta skoraði frábært mark fyrir Atalanta
Davide Zappacosta skoraði frábært mark fyrir Atalanta
Mynd: EPA
Atalanta 2 - 1 Cremonese
1-0 Nikola Krstovic ('13 )
2-0 Davide Zappacosta ('25 )
2-1 Morten Thorsby ('90 )

Atalanta er sjö stigum frá Meistaradeildarsæti eftir að hafa unnið nýliða Cremonese, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Nikola Krstovic og Davide Zappacosta skoruðu mörk Atalanta með tólf mínútna millibili.

Krstovic gerði frábærlega á 13. mínútu er hann tók á móti fyrirgjöf Giacomo Raspadori í teignum, sneri sér við og setti boltann í vinstra hornið.

Markið hjá Zappacosta var ekkert síðra. Hann fékk sendingu úti hægra megin, lék á varnarmann Cremonese áður en hann hamraði boltanum í fjærhornið. Áhugamenn um enska boltann þekkja Zappacosta vel eftir tíma hans hjá Chelsea þar sem hann vann enska bikarinn og Evrópudeildina.

Danski leikmaðurinn Morten Thorsby tókst að klóra í bakkann fyrir Cremonese á lokasekúndunum, en fleiri urðu mörkin ekki.

Cremonese er án sigurs í síðustu tíu leikjum og er í 16. sæti með 23 stig en Atalanta vann dýrmætan sigur í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Liðið er í 7. sæti, sjö stigum frá Meistaradeildarsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner